Innlent

Lifir í ótta eftir að nálgunarbanni var hafnað

Magnús Már Guðmundsson skrifar

Kona sem var beitt afar grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi af sambýlimanni sínum í rúmlega þrjú ár er mjög ósátt við niðurstöðu Hæstaréttar frá því fyrir helgi, að sögn Gunnhildar Pétursdóttur, lögfræðings hennar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór fram á að sex mánaða nálgunarbann mannsins yrði framlengt um þrjá mánuði. Hæstiréttur hafnaði þeirri beiðni síðastliðinn fimmtudag. Maðurinn sat í janúar í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið.

Ákærði beitti sambýliskonu sína ofbeldi og sýna myndir og myndbönd merki um miklar barsmíðar. Maðurinn fékk ókunnuga karlmenn til að eiga samræði við konuna gegn hennar vilja. Hann myndaði kynferðislegar athafnir mannanna með konunni. Ofbeldið átti sér stað á árunum 2005 til 2007.

,,Nú þegar nálgunarbannið á ekki lengur við þá er alltaf sá möguleiki fyrir hendi að hann nálgist hana og bara sú tilhugsun veitir henni mikla óöryggistilfinningu í ljósi ofbeldissögunnar," segir Gunnhildur.

Stefán Eiríkisson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við Vísi á föstudaginn að embættið teldi ríka ástæðu vera til fara fram á áframhaldandi nálgunarbann.

Hæstiréttur klofnaði í afstöðu sinni og töldu Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson ekki þörf á að framlengja nálgunarbannið. Aftur á móti var Páll Hreinsson ósammála þeim og skilaði sératkvæði.

Rannsókn málsins teygir anga sína út fyrir landsteinana og hefur lögreglan þurft að leita aðstoðar lögregluyfirvalda í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.






Tengdar fréttir

Réttargæslumaður konunnar sammála lögreglu

Þórdís Bjarnadóttir, lögmaður, er sammála yfirmanni kynferðisbrotadeildar höfuðborgarlögreglunnar sem sagði í viðtali við Fréttablaðið að nálgunarbann eigi að vera undir lögreglu komið. Hæstiréttur hafnaði á dögunum kröfu lögreglu um að framlengja nálgunarbann gagnvart manni sem grunaður er um að hafa ítrekað beitt konu sína grófu ofbeldi og misnotað hana kynferðislega. Þórdís er réttargæslumaður konunnar.

Telur að ofbeldismaðurinn haldi áfram að beita ógnunum

,,Maðurinn braut nálgunarbannið þó hann hafi ekki ráðist á konuna. Hann hafði samband við hana sem honum var ekki heimilt. Ég sé engin rök fyrir því maðurinn muni ekki halda áfram að beita konuna ofbeldi."

Rannsókn á grófum ofbeldisbrotum nær út fyrir landsteinana

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á grófum brotum manns gegn sambýliskonu sinni teygir anga sína út fyrir landsteinana. Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að maðurinn, sem talinn er hafa beitt sambýliskonu sína grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á rúmlega þriggja ára tímabil, skuli ekki sæta áfram nálgunarbanni.

Rík ástæða til að fara fram á nálgunarbann

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir að embættið hafi talið ríka ástæðu til að fara fram á áframhaldandi nálgunarbann manns sem ákærður hefur verið fyrir að beita sambýliskonu sína grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi.

Austurríska leiðin í höndum allsherjarnefndar

Björn Bjarnason segir ákvörðun um það hvort að austurríska leiðin, þar sem lögreglan fengi vald til að fjarlægja ofbeldismenn af heimilum, verði tekin upp hér á landi vera í höndum allsherjarnefndar.

Segir Björn standa í vegi fyrir austurrísku leiðinni

Dómsmálaráðherra hefur komið í veg fyrir að austurríska leiðin verði tekinn upp hér landi, að mati Kolbrúnar Halldórsdóttur. Úrræðið felur í sér að fbeldismaður er fjarlægður af heimili sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×