Fótbolti

Stefán tók við bikarnum

Elvar Geir Magnússon skrifar

Stefán Gíslason og félagar í danska liðinu Bröndby urðu í dag bikarmeistarar í Danmörku. Liðið vann 3-2 sigur á Esbjerg í æsispennandi úrslitaleik þar sem sigurmarkið kom á 85. mínútu.

Stefán lék allan leikinn fyrir Bröndby og tók við bikarnum á Parken eftir leik þar sem hann er fyrirliði liðsins.

Þetta er í sjötta sinn sem Bröndby verður bikarmeistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×