Formúla 1

Hamilton saknar að berjast við Alonso

AFP

Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McLaren segist sakna baráttunnar við fyrrum liðsfélaga sinn Fernando Alonso sem nú ekur með Renault.

"Ég sakna þess sannarlega að etja kappi við Alonso. Þessi einvígi styrktu mig og ég græddi á því að keppa innbyrðis við tvöfaldan heimsmeistara. Ég lærði mikið af honum. Við erum enn að keppa á brautinni en nú er ég kominn með nýjan liðsfélaga í Heikki Kovalainen og hann kemur með jafnvægi inn í liðið. Hann er góður liðsfélagi," sagði Hamilton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×