Menning

Dansandi aftur á svið

Kvart Jo Strömgren hlaut Grímuverðlaunin 2008 sem besti danshöfundurinn fyrir Kvart og Emilía Gísladóttir var valinn besti dansarinn fyrir frammistöðu sína í verkinu.Mynd Íd
Kvart Jo Strömgren hlaut Grímuverðlaunin 2008 sem besti danshöfundurinn fyrir Kvart og Emilía Gísladóttir var valinn besti dansarinn fyrir frammistöðu sína í verkinu.Mynd Íd

Um helgina hefjast sýningar í Borgarleikhúsinu á nóvemberverkum Íslenska dansflokksins og verða sýningar á þeim næstu sunnudaga.

Áhugamönnum um dans gefst um helgina í Borgarleikhúsinu tækifæri á að sjá Dans-anda, vinsæla og verðlaunaða sýningu sem var á fjölunum í fyrra. Dans-andi er yfirskrift yfir tvö frábær en gjörólík verk eftir tvo af mest spennandi danshöfundum Norðurlanda, Jo Strömgren og Alexander Ekman.

Í Kvart eftir Jo Strömgren, konung dansleikhússins, dansa dansararnir hvor fyrir annan. Ákafur og fagur dans við magnaða tónlist eftir finnska tónskáldið Kimmo Pohjonen sem hefur meðal annars unnið með Sigur Rós og Múm. Búningar eru eftir Steinunni Sigurðardóttir, einn fremsta fatahönnuð okkar. Höfundur Kvart Jo Strömgren hlaut Grímuverðlaunin 2008 sem besti danshöfundurinn fyrir Kvart og Emilía Gísladóttir var valinn besti dansarinn fyrir frammistöðu sína í verkinu.

Hitt verkið er Endastöð eftir Alexander Ekman en ef Strömgren er kóngurinn í norrænu dansleikhúsi þá er Ekman krónprinsinn. Í Endastöð fer saman látbragð og dans þar sem við fylgjumst með hópi gamalmenna í leit þeirra að æskunni. Verkið er leikrænt, létt, fyndið og rómantískt.

Sýningin fékk í alla staði frábæra dóma og það komust færri að en vildu. Hér í blaðinu fékk hún þessi ummæli: „Flott sýning og skemmtileg". -

„Þessa sýningu gæti ég vel hugsað mér að sjá aftur". Fólki gefst því nú annað tækifæri að sjá þessa skemmtilegu sýningu.

pbb@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×