Tilboð í JJB Sports sagt vera í burðarliðnum 28. nóvember 2008 08:57
JD Sports Fashion hefur gefið í skyn að tilboð í JJB Sports sé í burðarliðnum. Exista á stóran hlut í JJB Sports en verð á hlutabréfum í félaginu hafa hrapað frá því á síðasta ári er hluturinn var keyptur. JD er helsti keppinautur JJB Sports í íþróttavöru- og fatnaðargeiranum á Bretlandseyjum. JD tilkynnti í vikunni að það hefði fest kaup á rúmlega 10% hlut í JJB Sports fyrir 8,1 milljón punda. Þetta er talið merki um áhuga JD að gera yfirtökutilboð í JJB Sports að því er segir í Timesonline. JJB Sports á þegar í samningaviðræðum um sölu á 50 líkamsræktarstöðvum sínum til Dave Whelan sem er eigandi Wigan Athletic. Exista keypti ásamt Chris Ronnie, núverandi forstjóra, 29% hlut í JJB Sport í júní á síðasta ári á 190 milljónir punda eða um 24 milljarða króna á gengi þess tíma. Gengi bréfa í fyrirtækinu hefur fallið um 81% síðan þá. Lýður Guðmundsson stjórnarformaður Exista hefur sagt að hluturinn í JJB Sport hafi verið keyptur á alltof háu verði. Þeir greiddu 12 milljarða kr. fyrir hlutinn en fengu samt ekki mann í stjórn félagsins. Hluturinn hefur hingað til verið talinn nær verðlaus.
Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Sjá meira