Viðskipti erlent

Evran styrkist eftir vaxtaákvörðun

Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri evrópska seðlabankans.
Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri evrópska seðlabankans. Mynd/AFP

Gengi evrunnar styrktist nokkuð gagnvart bandaríkjadal í kjölfar þess að evrópski seðlabankinn ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum í dag. Þá hækkaði hráolíuverð lítillega, eða um einn dal.

Gengi evru styrktist um 0,9 prósent og kostaði ein evra 1,5569 dali um miðjan dag.

Þá fór hráolíuverð í 123,3 dali á tunnu í dag eftir að ákvörðun evrópska seðlabankans lá fyrir. Þetta er snarpasta verðhækkunin síðan í síðustu viku en verðið hafði lækkað um fimm dali síðan á föstudag í síðustu viku. Fyrir um hálfum mánuði fór olíutunnan í 135 dali á tunnu og hafði aldrei verið hærri.

Trichet lét í það skína í dag að svo gæti verið að seðlabankinn hækki stýrivexti lítillega í næsta mánuði til að sporna við aukinni verðbólgu.

Fréttastofa Reuters segir ólíklegt að stýrivextir verði lækkaðir frekar í Bandaríkjunum á næstunni og megi því reikna með að gengi bandaríkjadals, sem hefur verið á hraðri niðurleið, styrkist í kjölfarið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×