Menning

Gangverk leikhúsa

Mynd úr sýningunni Gangverkið í flutningi Nemendaleikhússins.
Mynd úr sýningunni Gangverkið í flutningi Nemendaleikhússins.

Fyrsta verkefni Nemendaleikhússins í vetur, sýningin Gangverkið, verður frumsýnt í kvöld á Litla sviði Borgarleikhússins.

Gangverkið er sýning sem leikhópurinn vann og samdi á átta vikum. Það er algjörlega unnið upp úr spuna, textum og hlutum sem leikhópurinn hefur safnað sjálfur í skoðun og rannsókn á vinnuumhverfi sínu, leiksviðinu. Verkið kannar spurningar sem standa leikhúsfólki nær og er afraksturinn sá að leikhúsmiðillinn tekst á við sjálfan sig í sýningunni.

Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir og aðstoðarleikstjórar eru Hlynur Páll Pálsson og Friðgeir Einarsson. Um leikmynd og búninga sér Ilmur Stefánsdóttur, um lýsingu Arnar Ingvarsson og um tónlist og hljóðmynd G. Karel Másson.

Nemendaleikhúsið skipa þau Bjartur Guðmundsson, Hannes Óli Ágústsson, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Vigdís Másdóttir, Walter Geir Grímsson og Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir. - vþ








Fleiri fréttir

Sjá meira


×