Golf

Eygló Óskarsdóttir í forystu í Eyjum

NordicPhotos/GettyImages

Eygló Myrra Óskarsdóttir úr GO hefur þriggja högga forystu í kvennaflokki eftir fyrsta hringinn á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer í Vestmannaeyjum.

Eygló lék fyrsta hringinn á 74 höggum eða fjórum yfir pari. Tinna Jóhannsdóttir úr GK er í öðru sæti eftir að hún lék á 77 höggum í dag og þær Ásta Birna Magnúsdóttir úr GK, Nína Björk Geirsdóttir úr GKj og Andrea Ásgrímsdóttir úr GA eru jafnar í þriðja sætinu á 79 höggum.

Hér má sjá fremstu kylfingana eftir fyrsta hring:

1. Eygló Myrra Óskarsdóttir GO 74

2. Tinna Jóhannsdóttir GK 77

3. Ásta Birna Magnúsdóttir GK 79

4. Nína Björk Geirsdóttir GKJ 79

5. Andrea Ásgrímsdóttir GA 79

6. Hanna Lilja Sigurðardóttir GR 80

7. Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 80

8. Valdís Þóra Jónsdóttir GL 80

9. Ragnhildur Sigurðardóttir GR 81








Fleiri fréttir

Sjá meira


×