Hægt að spara milljónatugi með láni í erlendri mynt 28. febrúar 2008 18:30
Hægt er að spara milljónatugi á því að taka lán í erlendri mynt nú þegar kjarasamningar ASÍ og atvinnurekenda heimila fólki að semja um að fá hluta af launum í erlendum gjaldmiðli. Áttatíu þúsund manns hafa nú þessa heimild í sínum samningum. Aldrei áður hefur í íslenskum kjarasamningum verið sérstaklega samið um að fólk geti fengið hluta af launum í útlenskum gjaldmiðli. Tvær leiðir eru í boði, annars vegar að fá erlendan gjaldmiðil inn á reikninginn eða að tengja hluta af laununum við gengi á öðrum gjaldmiðli. Þessi heimild mun ekki vera háð því að fyrirtækið sem þú vinnur hjá hafi tekjur í erlendum gjaldmiðli. Með himinháa vexti á fasteignalánum bankanna er því ekki ólíklegt að einhverjir af þessum 80 þúsund sem samið var fyrir hugsi sér gott til glóðarinnar og reyni að semja við yfirmanninn um hluta launa í evrum til dæmis, og taka síðan húsnæðislán í evrum. Því þar með er gengisáhættan fokin, eina áhættan eru vaxtabreytingar því breytilegir vextir eru á erlendu lánunum. En hverju skyldi það muna? Fréttastofa Stöðvar 2 fékk Kaupþing til að reikna það út fyrir sig, svona eins og hægt er, því erfitt er að spá um framtíðina. Hún Mist ætlar að kaupa sér þriggja herbergja íbúð á 20 milljónir og þarf 16 milljónir að láni til 40 ára. Ef hún tekur íslenskt verðtryggt jafngreiðslulán, væri hún að greiða röskar 93 þúsund krónur í afborganir á mánuði til að byrja meðen undir lokin á þessum 40 árum um 651 þúsund krónur. Heildarendurgreiðslan er rúmar 137 milljónir og 800 þúsund krónur. En ef hún fær hluta af launum í evrum og tekur evrulán? Jú, þá væru fyrstu greiðslur kringum 146 þúsund krónur en um 236 þúsund í lok lánsins. Endanleg greiðsla yrði rúmar 107 milljónir, um 30 milljónum lægri en af íslenska láninu. En hvernig væri að taka japanskt jenalán, lægri vextir finnast varla? Jú, af því vextirnir eru lágir þá yrðu fyrstu afborganir svipaðar og á krónuláninu, síðustu afborganir langtum lægri og heildarendurgreiðsla rúmlega 81 milljón eða um 56 milljónum króna minna en krónulánð.
Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Val Kilmer er látinn Lífið Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Engin virkni á gossprungunni en glóð logar í hrauninu Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Fleiri fréttir Réðust á og hótuðu starfsmönnum verslunar Engin virkni á gossprungunni en glóð logar í hrauninu Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Sjá meira