Menning

Lesið hátt á kaffihúsum

Hjörleifur Sveinbjörnsson les úr úrvali sínu kínversku á efri hæð Bókabúðar MM í kvöld.
Hjörleifur Sveinbjörnsson les úr úrvali sínu kínversku á efri hæð Bókabúðar MM í kvöld.

Nú er títt og hátt lesið úr nýútkomnum bókum á kaffihúsum: í kvöld verður upplestrarkvöld kl. 20 á Café Loka á Lokastíg. Vilborg Dagbjartsdóttir les upp úr bókinni Dagbók Héléne Berr, sem fjallar um örlög franskrar gyðingastúlku á tímum síðari heimstyrjaldarinnar. Auður Ólafsdóttir les upp úr bók sinni Afleggjarinn, sem tilnefnd er til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2009 og kom út í fyrra. Arndís Hrönn Egilsdóttir leikkona les upp úr splunkunýjum krimma Eyrúnar Ýrar Tryggvadóttur Hvar er systir mín? og metsölubókinni Borða, biðja, elska. Helgi Guðmundsson les upp úr bók sinni Til baka. Þar segir Helgi frá hörmulegri eigin reynslu, en fléttar inn í hana efni og persónum sem eru hreinn skáldskapur.

Á Te & kaffi á annarri hæð bókabúðar Máls og menningar við Laugaveg verður næstsíðasti upplesturinn í upplestraröð Forlagsins undir heitinu „Gleymdu þér andartak". Les Hjörleifur Sveinbjörnsson úr þýðingasafninu Apakóngur á silkiveginum sem bókmenntir.is sögðu að væri „eins og að komast í fjársjóðskistu ... og einn feitasti fengurinn í þessari bókavertíð." Þá flaug Eiríkur Örn Norðdahl fyrirvaralaust alla leið frá Helsinki til að flytja hljóðaljóð úr bókinni Ú á fasismann auk þess sem hann les úr þýðingum sínum á ljóðum Allens Ginsberg sem komu út í safninu Maíkonungurinn. Lesið verður úr Leitinni að barninu í gjánni eftir Guðberg Bergsson og Bara gaman eftir Guðrúnu Helgadóttur. Að lokum les Guðjón Friðriksson úr umdeildri bók sinni Sögu af forseta þar sem fjallað er um forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.