Golf

Helena Íslandsmeistari eftir bráðabana

Elvar Geir Magnússon skrifar
Helena er Íslandsmeistari.
Helena er Íslandsmeistari.

Helena Árnadóttir úr GR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í annað sinn eftir æsispennandi umspil og bráðabana á Íslandsmótinu í höggleik í Vestmannaeyjum í dag.

Helena sigraði Nínu Björk Geirsdóttur úr GKj á annarri holu í bráðabana, en þær höfðu áður leikið þriggja holu umspil.

Nína Björk átti titil að verja en Helena varð Íslandsmeistari 2006. Það voru því Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára sem berjast um titilinn. Helena lék hringinn í dag á 77 höggum en Nína Björk lék á 78 höggum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×