Christian klien, þróunarökumaður BMW er ekki hrifinn af útliti 2009 bílsins sem hefur verið prófaður á Barcelona brautinni í vikunni. Klien segir bílinn þann ljótasta sem hann hafi séð.
"Bíllinn er þokklaega kynþokkafullur….. Nei. Þetta er ljótasti Formúlu 1 bíll sem ég hef augum litið, en honum verður breytt talsvert fyrir fyrsta mót. En eins og staðan er núna þá er þetta furðurlegur bíll í mínum augum", sagði Klien.
"Bíllinn lætur þó vel að stjórn og er hraðskreiður. Yfirbyggingin er samkvæmt nýju reglunum sem verða í gildi á næsta ári. Það er mun minna niðurtog, en gripið er mikið í beygjum þar sem við erum að prófa raufalaus dekk. Það er rétt ákvörðun FIA að nota þessi dekk á næsta ári."
Ökumenn sem hafa æft í Barcelona og þá sérstaklega BMW menn hafa áhyggjur af því hve breiðir framvængir bílanna eru. Þeir segja hættu á því að vængirnir brotni þegar menn reyni framúrakstur, ekki síst í upphafi móta. Allir bílar eiga þó eftir að breytast fram að fyrsta móti.