Menning

Gefur út tvær kynlífsbækur

Yvonne, sem á íslenska móður en bandarískan föður, hefur gefið út tvær nýjar kynlífsbækur.
Yvonne, sem á íslenska móður en bandarískan föður, hefur gefið út tvær nýjar kynlífsbækur.

Kynlífsfræðingurinn Yvonne Kristín Fulbright, sem á íslenska móður og bandarískan föður, hefur gefið út tvær nýjar bækur sem nefnast Pleasuring: The Secrets to Sexual Satisfaction og Your Orgasmic Pregnancy: Little Secrets Every Hot Mama Should Know.

„Fólkið hjá útgáfufyrirtækinu Barnes & Nobles talaði við mig og bað mig um að skrifa Pleasuring," segir Yvonne. „Markmiðið var að skrifa bók sem gæti hjálpað pörum að stunda betra kynlíf. Í bókinni er fjallað um líkamlega snertingu, samskipti para og að endurnýja ástríðu og rómantík í samböndum," segir hún og tekur fram að nektarmyndirnar í bókinni, sem voru teknar í Frakklandi og á Kosta Ríka, séu mjög vel heppnaðar.

Hin bókin, Your Orgasmic Pregnancy sem Yvonne samdi ásamt Danielle Cavalluci, fjallar eins og nafnið gefur til kynna um kynlíf á meðgöngunni. „Pör sem eiga von á barni þurfa mörg hver að fræðast betur um það hvernig eigi að stunda heilbrigt kynlíf meðan á meðgöngu stendur og eftir að barnið fæðist," segir Yvonne, sem nýlega hélt fyrirlestra í Háskóla Íslands þar sem hún fjallaði um málefnið.

Í grein Fréttablaðsins á síðasta ári kom fram að Yvonne væri með nýja hljóðbók í smíðum þar sem hún kenndi foreldrum að tala við börnin sín um kynlíf. Hún segir að útgáfa bókarinnar hafi dregist á langinn en vonast til að hún komi út síðar í vetur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×