Formúla 1

Nadal kveikti í Hamilton

AFP

Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McLaren segir að sigur spænska tennisleikarans Rafael Nadal í sögulegum úrslitaleik á Wimbledon á dögunum hafi verið sér hvatning í titilslagnum í Formúlu 1.

Nadal hafði betur gegn hinum magnaða Roger Federer í æsilegum úrslitaleik og Hamilton hreifst mjög af hungri Spánverjans eftir að hann vann sinn fyrsta Wimbledon titil.

"Nadal var einfaldlega svo hungraður að ég held að Federer hafi bara ekki náð að jafna um hann, því hann hefur unnið svo oft. Ég tengi eflaust nokkuð við Nadal af því ég er svo staðráðinn í að vinna minn fyrsta titil. Ég er enn hungraðari en ég var í fyrra, sérstaklega eftir að hafa komist svona nálægt því að vinna," sagði hinn 23 ára gamli ökuþór.

Hamilton deilir toppsæti ökumanna í Formúlu 1 með þeim Felipe Masssa og Kimi Raikkönen með 48 stig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×