Golf

Woods heldur forystunni í Dubai

Woods spilaði ekki sérlega vel í dag en heldur forystunni
Woods spilaði ekki sérlega vel í dag en heldur forystunni Nordic Photos / Getty Images

Tiger Woods fékk fugl á síðustu holunni á öðrum hringnum á Dubai mótinu í golfi í dag og hefur því eins höggs forystu á næsta mann á mótinu. Woods er samtals á átta höggum undir pari.

Woods lék á 71 höggi í dag og byrjaði daginn á tveimur undir. Hann var þó nokkuð frá sínu besta í nokkuð köldu veðri og lélegum aðstæðum.

Írski kylfingurinn Damien McGrane lék á fjórum undir pari í dag og það nægði honum til að ná öðru sætinu á mótinu.

Efstu menn:

-8 T Woods (USA)

-7 D McGrane

-6 T Levet, H Stenson

-5 R Fisher, S Garcia, P Hedblom, S Hend, G McDowell, G Murphy, H Otto




Fleiri fréttir

Sjá meira


×