Viðskipti erlent

Gullverð í methæðum og hlutabréfin niður

Heimsmarkaðsverð á gulli fór í 1.000 dali á únsu í fyrsta sinn í dag. Reiknað hafði verið með því að gullverðið næðu þessu marki á næstu mánuðunum. Svo virðist hins vegar sem fjárfestar hafi keyrt verðið upp mun hraðar en gert hafði verið ráð fyrir eftir því sem kreppt hefur að á fjármálamörkuðum.

Þá á viðvarandi lækkun á gengi bandaríkjadals stóran hlut að máli.

Fjárfestar hafa í miklu mæli fjárfest í hrávörumarkaði en það þykir skjól í því veðravíti sem varað hefur á fjármála- og hlutabréfamörkuðum síðustu mánuði.

Gullverðið rauk upp um 32 prósent á síðasta ári en hefur á þeim tæpu þremur mánuðum sem liðnir eru af þessu ári hækkað um tuttugu prósent. Fjármálasérfræðingar reikna með að verðið haldist hátt svo lengi sem gengi bandaríkjadals sé lágur og bandarískt efnahagslíf veikt. Enn hefur þrengt að hjá fjárfestum á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum í dag. Nikkei-vísitalan féll um rúm þrjú prósent og evrópskir markaðir hafa staðið á rauðu, þar á meðal hér. Þá hófust viðskipti á bandarískum hlutabréfamarkaði fyrir nokkrum mínútum síðan. Dow Jones-vísitalan hefur lækkað um 1,5 prósent og Nasdaq-vísitalan um 1,4 prósent.

Gengi bréfa í deCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, sem birti afkomutölur sínar í gærkvöldi, hefur fallið um 5,18 prósent og stendur gengið í 1,83 dölum á hlut.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×