Innlent

Borgin kaupir Laugaveg 4 og 6 á 580 milljónir

Reykjavíkurborg samdi í dag við Kaupvang ehf. um að kaupa húsin við Laugaveg 4 og 6. Samkvæmt öruggum heimildum Vísis er kaupverðið um 580 milljónir.

Þetta er þó gert með þeim fyrirvara að borgarráð samþykki kaupverðið.

Reykjavíkurborg hyggst í kjölfarið gera húsin tvö upp í takt við hugmyndir nýs meirihluta í borgarstjórn um að standa vörð um 19. aldar götumynd Laugavegs.

Þegar lokið verður við að gera húsin upp er áætlað að þau verði seld.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×