Menning

Hálfviti leikur Skugga-Svein

Baldur Ragnarsson þykir hafa staðið sig með prýði í hlutverki Skugga-Sveins.
fréttablaðið/arnþór
Baldur Ragnarsson þykir hafa staðið sig með prýði í hlutverki Skugga-Sveins. fréttablaðið/arnþór

Baldur Ragnarsson, meðlimur Ljótu hálfvitanna, leikur í kvöld í síðustu sýningu Skugga-Sveins sem Leikfélag Kópavogs hefur sýnt við góðar undirtektir í leikstjórn Ágústu Skúladóttur.

Baldur telst vera einn sá yngsti, ef ekki yngsti leikarinn sem hefur farið með hlutverk Skugga-Sveins hér á landi. „Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt og þetta er svo „grand" verk. Síðan er ótrúlega gaman að fá að vera vondur einu sinni," segir Baldur sem segir það ganga vel að samræma leikinn og tónlistina. „Við erum meira og minna einhvern veginn tengdir leiklist. Við höfum allir verið að spila í leikritum og flestir hafa verið að leika líka."

Þrennir tónleikar eru fram undan hjá Ljótu hálfvitunum. Fyrst spila þeir á Akranesi á laugardag, síðan á Rósenberg 13. desember og loks á Græna hattinum á Akureyri 2. janúar. Baldur játar að þeir félagar séu allir komnir í löðrandi jólaskap. „Við eigum slatta af jólalögum. Við gáfum út eitt í fyrra og eigum fleiri á lager. Við erum búnir að vera duglegir að semja upp á síðkastið og stefnum á að gefa út plötu sem fyrst," segir hann.

Þeir sem vilja sjá Baldur og félaga í Leikfélagi Kópavogs leika í Skugga-Sveini í hinsta sinn geta nælt sér í miða á síðunni kopleik.is. Leikritið er sýnt í glænýju leikhúsi í Funalind sem meðlimir leikfélagsins tóku þátt í að byggja meðfram æfingum fyrir Skugga-Svein. „Þetta var strembinn tími en fyrir vikið eigum við þetta fína leikhús," segir hann. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.