Viðskipti innlent

Krónan styrktist í enda dags

Gengi krónunnar styrktist um 0,16 prósent síðla dags og stendur vísitalan í 167,8 stigum. Vísitalan fór yfir 170 stiga múrinn í gær og hafði hún aldrei verið lægri.

Krónan veiktist um 0,6 krónur fram eftir degi. Árslækkun hennar nemur 40 prósentum.

Bandaríkjadalur kostar 83,8 krónur, eitt breskt pund 165,1 krónur, dönsk króna kostar 17,5 íslenskar og ein evra kostar 130,6 krónur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×