Formúla 1

Pastrana forfallast vegna meiðsla

Travis Pastrna er þekktur fyrir áhættuatriði á mótorhjólum. Hann átti að keppa á Wmbley á sunnudaginn en meiddist í vikunni.
Travis Pastrna er þekktur fyrir áhættuatriði á mótorhjólum. Hann átti að keppa á Wmbley á sunnudaginn en meiddist í vikunni. Mynd: Getty Images

Frægur bandarískur ökumaður, Travis Pastrana getur ekki keppt í meistaramóti ökumanna á Wembley á sunnudaginn vegna meiðsla sem hann hlaut á mótorhjóli í vikunni.

Pastrana er þekktur fyrir áhættusöm atriði á mótorhjólum, en hefur keppt í rallakstri í Bandaríkjunum að undanförnu.

Pastrana féll af mótorhjóli sínu í hjólaferð með vini sínum. "Ég var að æfa mig á moto-kross braut, þegar ég féll við og feitur vinur minn hreinlega keyrði yfir mig. Ég sat bara í rykinu og meiddist á hné og mjöðm", sagði Pastrana.

"Ég er því ekki hæfur í meistaramótið á Wembley og mun sakna þess sárt að keppa ekki. Það er svo góður andi meðal keppenda og mótið er frábær skemmtun og mikill stríðni á milli ökumanna", sagði Pastrana.

18 ökumenn keppa í meistaramóti ökumanna á sunnudaginn, m.a. fjöldi Formúlu 1 ökumanna og staðgengill Pastrana verður Tanner Foust, sem er amerískur meistari í "drift" kappakstri, sem er keppnisgrein sem er ættuð frá Japan.

"Mér finnst frábært að Tanner er valinn í minn stað fyrir bandaríska liðið. Það eru fáir sem ráða eins við bíla og Tanner", sagði Pastrana.

Mótið á Wembley er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 14.00 á sunnudaginn.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×