Formúla 1

Alonso byrjaður með Renault

Spænski heimsmeistarinn ók á sinni fyrstu æfingu með Renault í dag á Jerez brautinni á Spáni. Hann gerði sér lítið fyrir og náði besta tíma á æfingunni. Hann ók í fyrsta skipti keppnisbíl án spólvarnar og sló við nýjustu ökutækjum McLaren og Ferrari á 2007 Renault.

,,Æfingin gekk vel, en það er orðið nokkuð langt síðan ég ók Formúlu 1 bíl. Ég hef aldrei ekið án spólvarnar áður og maður verður að breyta um akstursstíl. Ég fór því rólega af stað, en tók síðan meiri áhættu eftir því sem leið á æfinguna", sagði Alonso.

Aðspurður um væntanlega samvinnu sína við Nelson Piquet sagði Alonso að hann hefði ekið með mörgum liðsfélögum gegnum tíðina og þeir væru vinir hans. Hann taldi alla upp, nema Lewis Hamilton. Eins og kunnugt er sinnaðist honum við McLaren menn og hætti með liðinu og gekk til liðs við Renault á ný.

Margir spá Alonso velgengni með Renault í ár, en hann varð einu stigi á eftir Kimi Raikkönen í titlslagnum með McLaren í fyrra. Alonso varð meisari með Renault 2005 og 2006.

Sjá nánar á kappakstur.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×