Körfubolti

Lýsingarbikarinn: Grannaslagur hjá konunum

Njarðvíkingar fá Snæfellinga í heimsókn
Njarðvíkingar fá Snæfellinga í heimsókn Mynd/Daníel

Í dag var dregið í undanúrslitin í Lýsingarbikar karla og kvenna í körfubolta. Grannarnir Grindavík og Keflavík drógust saman í fyrri undanúrslitaleiknum í kvennaflokki en hinn leikurinn verður viðureign Hauka og Fjölnis.

Í karlaflokki verður stórleikur í Ljónagryfjunni í Njarðvík þar sem heimamenn taka á móti Snæfelli. Í hinni viðureigninni taka Skallagrímsmenn á móti Fjölni í Borgarnesi.

Undanúrslitaleikirnir fara fram helgina 2.-3. febrúar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×