Innlent

Lögreglan lýsir eftir Ingvari Erni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ingvari Erni Arnarssyni. Ingvar er 15 ára og hann er til heimilis í Reykjavík og hvarf af heimili sínu þriðjudaginn 21. október.

Ingvar er um 1,77 metra á hæð með græn augu, rauðbirkinn og rauðhærður. Þegar hann fór að heiman var hann klæddur í ljósbláar gallabuxur, svarta skó, rauða peysu og í dökkum úlpujakka sem nær niður á mið læri. Hann var með rauða húfu og og bláan bakpoka.

Þeir sem upplýsingar geta gefið varðandi verustað Ingvars Arnar eru vinsamlegast beðnir um að hringja í síma 444-1100 hjá lögreglu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×