Golf

Birgir Leifur lék á fjórum höggum yfir pari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur.
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur. Nordic Photos / Getty Images

Birgir Leifur Hafþórsson hóf í dag leik á opna Joburg-mótinu í Suður-Afríku en mótið er liður í Evrópumótaröðinni í golfi.

Hann lék á samtals 75 höggum og kom í hús á fjórum höggum yfir pari. Sem stendur er hann í 135.-156. sæti en nokkrir kylfingar eiga eftir að ljúka leik í dag.

Þó er ljóst að hann þarf að bæta sig talsvert á morgun til að eiga möguleika á að komast í gegnum niðurskurðinn að loknum öðrum keppnisdegi. 

Birgir Leifur byrjaði illa í morgun og fékk þrjá skolla á fyrstu fimm holunum. Þá komu tveir fuglar á næstu þremur holum en hann fékk svo aftur skolla á níundu holunni.

Hann byrjaði svo á því að fá par á fyrstu sex holunum á seinni níu en hann fékk svo tvo skolla á síðustu þremur holunum.

Fyrsti keppnisdagur:

1. braut: Par 4 (472 metrar) - 5 högg (skolli)

2. braut: Par 3 (231 metri) - 3 högg (par)

3. braut: Par 4 (434 metrar) - 4 högg (par)

4. braut: Par 4 (435 metrar) - 5 högg (skolli)

5. braut: Par 3 (162 metrar) - 4 högg (skolli)

6. braut: Par 5 (530 metrar) - 4 högg (fugl)

7. braut: Par 4 (384 metrar) - 4 högg (par)

8. braut: Par 5 (506 metrar) - 4 högg (fugl)

9. braut: Par 4 (389 metrar) - 5 högg (skolli)

Fyrri níu: Par 36 - 38 högg (tveir yfir pari)

10. braut: Par 4 (474 metrar) - 4 högg (par)

11. braut: Par 4 (457 metrar) - 4 högg (par)

12. braut: Par 3 (181 metri) - 3 högg (par)

13. braut: Par 4 (384 metrar) - 4 högg (par)

14. braut: Par 4 (413 metrar) - 4 högg (par)

15. braut: Par 4 (440 metrar) - 4 högg (par)

16. braut: Par 3 (190 metrar) - 4 högg (skolli)

17. braut: Par 4 (354 metrar) - 4 högg (par)

18. braut: Par 5 (504 metrar) - 6 högg (skolli)

Seinni níu: Par 35 - 37 högg (tveir yfir pari)

Samtals: 75 högg - 4 yfir pari (135.-156. sæti)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×