Körfubolti

Luber á förum frá Tindastóli

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ben Luver. Mynd/Feykir.is
Ben Luver. Mynd/Feykir.is

Benjamin Luber, leikmaður Tindastóls í Iceland Express deildinni, er á förum frá félaginu. Þetta staðfestir Kristinn Friðriksson þjálfari liðsins á vefsíðunni feykir.is.

„Svo virðist sem hann eigi erfitt með að aðlagast sem atvinnumaður. Luber ætlar að spila leikina á fimmtudaginn og sunnudaginn svo er hann farinn," sagði Kristinn.

Tindastóll er í þriðja sæti deildarinnar eftir þrjár umferðir en liðið mætir Stjörnunni á fimmtudag og Njarðvík á sunnudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×