Formúla 1

Honda að hætta á morgun?

Ross Brawn og Nick Fry fagna meti Rubens Barrichello á árinu þeagar hann ók í sinni 257. keppni á ferlinum
Ross Brawn og Nick Fry fagna meti Rubens Barrichello á árinu þeagar hann ók í sinni 257. keppni á ferlinum NordicPhotos/GettyImages

Á morgun mun keppnislið Honda tilkynna að það sé hætt keppni í Formúlu 1. Þetta hefur BBC eftir heimildamönnum sínum í kvöld.

Forráðamenn japanska bílaframleiðandans vonast til að geta selt liðið, en eru tilbúnir að hætta ef kaupandi finnst ekki snemma næsta árs. Það kostar 200 milljónir punda að reka liðið árlega.

Heimildamenn BBC sögðu að liðið væri bjartsýnt á að geta haldið áfram en þó hafa engir fjárfestar lýst yfir áhuga á að taka yfir liðið.

Reuters fréttastofan segist hafa heimildir fyrir því að bæði Ross Brawn og Nick Fry, yfirmenn liðsins, óttist að Honda missi liðið úr höndum sér á næstu vikum. Sagt er að þeir hafi mánuð til að finna kaupanda.

BBC segir einnig að heimskreppan sé farin að gera vart við sig í Formúlu 1 og segir að Williams liðið sé í vandræðum fjárhagslega og bendir á að Toyota liðið sé þegar farið að boða niðurskurð.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×