Enski boltinn

Owen boðinn betri samningur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Michael Owen, leikmaður Newcastle.
Michael Owen, leikmaður Newcastle.
Newcastle hefur boðið Michael Owen nýjan og betri samning sem myndi einnig framlengja veru hans hjá félaginu um þrjú ár.

Núverandi samningur hans rennur út í lok tímabilsins. „Nýi samningurinn felur í sér betri launakjör fyrir hann en það sýnir hversu mikla áherslu félagið leggur á að halda honum," sagði í yfirlýsingu frá Newcastle.

Owen fær nú þegar 103 þúsund pund í vikulaun hjá Newcastle og var orðaður við þó nokkur félög nú í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×