Enski boltinn

Tottenham náði stigi á Brúnni

Það var hart barist á Brúnni í dag. Hér eru þeir Luka Modric og Juliano Belletti.
Það var hart barist á Brúnni í dag. Hér eru þeir Luka Modric og Juliano Belletti.

Tottenham vann í dag sitt fyrsta stig í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu er liðið náði jafntefli, 1-1, gegn Chelsea á Stamford Bridge í dag.

Juliano Belletti kom Chelsea yfir með marki eftir hornspyrnu en Darren Bent jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks eftir klaufalegan varnarleik hjá Chelsea.

Tottenham var þar með síðasta liðið í ensku úrvalsdeildinni til að ná í sitt fyrsta stig en Chelsea er nú komið á topp deildarinnar með sjö stig.

Liverpool getur hins vegar komið sér í efsta sæti deildarinnar með sigri á Aston Villa í dag.

Dimitar Berbatov var fjarri góðu gamni hjá Tottenham í dag en sápuóperan um þann ágæta mann mun væntanlega ná hámarki á næsta sólarhring.

Giovanni Dos Santos var hins vegar í byrjunarliði Tottenham í dag í stað Aaron Lennon og þá var Chris Gunter einnig í byrjunarliðinu.

Michael Ballack lék ekki með Chelsea í dag og ákvað Luiz Felipe Scolari, stjóri Chelsea, að setja Juliano Belletti á miðjuna í hans stað.

Frank Lampard átti fyrsta almennilega færi leiksins er hann reyndi að vippa yfir Heurelho Gomes, markvörð Tottenham. Gomes sá hins vegar við honum en tilraunin var mjög góð.

Annars byrjaði leikurinn mjög fjörlega og Darren Bent komst til að mynda í ágætt færi sem hann tókst ekki að nýta sér.

Nicolas Anelka gerði sig svo líklegan til að skora en það var hins vegar Juliano Belletti sem gerði það. Hann skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu sem Chelsea fékk eftir að Anelka skapaði sér gott skotfæri en skaut yfir. Þá átti Michael Essien einnig fínt skot að marki en boltinn hafnaði í slánni.

Eftir þetta var allt útlit fyrir að Chelsea myndi taka öll völd í leiknum en þá jafnaði Tottenham skyndilega í lok fyrri hálfleiks.

Boltinn fór heldur klaufalega af Frank Lampard og beint fyrir fætur Darren Bent sem var þar með sloppinn inn fyrir vörn Chelsea og náði hann að senda knöttinn í gegnum fætur Petr Cech og í markið.

Síðari hálfleikur var heldur rólegri en bæði lið áttu sín hálffæri og áttu leikmenn Tottenham meira að segja nokkur tækifæri til að stela sigrinum í lokin og verða þar með fyrsta liðið í fjögur ár til að vinna Chelsea í deildarleik á Stamford Bridge. En allt kom fyrir ekki og niðurstaðan því jafntefli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×