Formúla 1

Fyrsta flóðlýsta mótið í sögu Formúlu 1

Ekið verður að næturlagi í Síngapúr.
Ekið verður að næturlagi í Síngapúr.

Formúlu 1 ökumenn bíða spenntir eftir fyrsta Formúlu 1 mótinu sem haldið verður á flóðlýstri braut á götum Síngapúr um helgina.

Fyrstu kapparnir eru þegar mættir á svæðið til að kanna aðstæður og venjast tímamismuninum á milli Evrópu og Singapúr. Það atferli er mikilvægt þar sem ökumenn og starfsmenn liða munu aka að næturlagi, svo útsendingar í Evrópu séu um miðjan dag. Munu svefnvenjur starfsmanna liðanna verða all óvenjulegar og líkur á að menn ruglist lítillega í ríminu hvað þetta atriði varðar.

„Ég tel að fyrirkomulagið muni hafa áhrif á starfsmenn okkar. Við höfum unnið með læknum og sérfræðingum til að minnka álag á líkama þeirra sem starfa fyrir okkur. Menn eru ekki vanir að vinna eða keppa á næturtíma í kappakstri," segir Pat Symonds, einn af yfirmönnum Renault liðsins. Hvert lið mætir með 100 starfsmenn og 30 tonn af búnaði, en 13 tíma flug er frá Englandi þar sem flest lið eru staðsett.

Margir ökumenn hafa áhyggjur af því að skyggni verði lítið ef það rignir. Þá er líka hætt á því að flóðljósin lýsi upp vatnssúlurnar sem standa afturúr bílunum og skapi þannig hættu. Brautin liggur um hafnarsvæðið og miðborgina í Singapúr og er hönnuð af Hermann Tilke. Bílarnir munu m.a. keyra undir eina stúkuna, en brautinni er líkt við kappaksturinn í Mónakó.

Mikil spenna er í keppni ökumanna, en aðeins einu sitigi munar á Lewis Hamilton á McLaren og Felipe Massa á Ferrari. Sex ökumenn eiga möguleika á titli ökumanna þegar fjórum mótið er ólokið.

Brautarlýsingin í Síngapúr








Fleiri fréttir

Sjá meira


×