Formúla 1

Æfingar í Barcelona

Kimi Raikkönen hjá Ferrari var sneggstur allra á æfingu á Barcelona brautinni í morgun. Liðsfélagi hans, Felipe Massa, var aðeins 50/1000 á eftir honum. Massa var þó mistækur á æfingunni og snerist í þrígang í brautinni.

Gengi Renault og heimamannsins Fenando Alonso var gott. Alonso varð sjötti með samskonar vélarhlíf og væng Red Bull liðið hefur verið að nota á æfingum.

Bein útsending er frá annarri æfingu keppnisliða í Barcelona kl. 11.55 á Stöð 2 Sport.

Sjá nánar á kappakstur.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×