Körfubolti

Heldur sigurganga Grindvíkinga áfram í kvöld?

Páll Axel Vilbergsson hjá Grindavík er með tæp 33 stig að meðaltali í leik
Páll Axel Vilbergsson hjá Grindavík er með tæp 33 stig að meðaltali í leik Mynd/Auðunn

Fimmta umferðin í Iceland Express deild karla í körfubolta hefst í kvöld með þremur leikjum.

Topplið Grindavíkur tekur á móti Þór í Grindavík þar sem heimamenn leitast við að vinna fimmta leik sinn í röð í upphafi móts. Þorsarar hafa unnið tvo af fyrstu fjórum leikjum sínum.

Skallagrímsmenn eru enn á botni deildarinnar án sigurs og þeir eiga fyrir erfitt verkefni gegn Stjörnunni í Ásgarði í kvöld, en Stjarnan hefur reyndar aðeins unnið einn leik til þessa.

Loks taka lærisveinar Vals Ingimundarsonar í Njarðvík á móti Tindastól í Ljónagryfjunni. Stólarnir hafa unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum en suðurnesjaliðið hefur unnið tvo af fjórum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×