Menning

Ljósmyndir skáldsins

Auður á Gljúfrasteini
Mynd frá því um 1950.
Auður á Gljúfrasteini Mynd frá því um 1950.

„Síðbúin sýn - ljósmyndir úr fórum Nóbelsverðlaunahafans og heimsborgarans Halldórs Laxness" er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í Þjóðmenningarhúsinu á þjóðhátíðardaginn næstkomandi þriðjudag kl. 13. Á sýningunni má sjá ljósmyndir sem Halldór Laxness tók á ferðum sínum innanlands og utan og heima á Gljúfrasteini. Myndefnið er samferðafólk hans, bæði fjölskylda og vinir, og svipmyndir af fólki og umhverfi þess á ýmsum slóðum. Segja má að ljósmyndirnar séu tækifærismyndir ferðalangsins, eiginmannsins, fjölskylduföðurins og vinarins Halldórs Laxness.

Skáldsögur Halldórs Laxness hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál og árið 1955 veitti sænska akademían honum Nóbelsverðlaun í bókmenntum fyrir „litríkan sagnaskáldskap, sem endurnýjað hefði stórbrotna íslenska frásagnarlist", eins og sagði í ummælum dómnefndar á sínum tíma.

Halldór lifði næstum alla 20. öldina frá enda til enda, hann var alþjóðlegt skáld og hugsjónamaður og virkur þátttakandi í hugsjónabaráttu liðinnar aldar. Verk hans tóku þannig á málefnum sem voru efst á baugi hjá stóru rithöfundum viðburðaríkrar aldarinnar.

Sýningin verður í Þjóðmenningarhúsinu fram í febrúar á næsta ári, en hún var fyrst sett upp í þýsku borginni Köln í fyrra. -vþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×