Viðskipti innlent

Krónan veikist lítillega

Gengi krónunnar hefur veikst lítillega frá því viðskipti hófust á gjaldeyrismarkaði í dag. Gengið veiktist um rúm 0,3 prósent í byrjun dags en styrktist lítillega í kjölfarið og nemur veiking hennar nú 0,16 prósentum.

Gengið styrktist um 1,2 prósent í fyrradag. 

Gengisvísitala krónunnar stendur nú í 147,44 stigum.

Einn bandaríkjadalur kostar nú 72,8 krónur, eitt breskt pund 144 krónur og ein evra 114,9 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×