Formúla 1

Hamilton: Ekki markmið að slá Schumacher við

Lewis Hamilton ræðir við Jackie Stewart, þrefaldan meistara í Formúlu 1. Hamilton vill þrjá titla svo hann vinni sér inn McLaren sportbíl.
Lewis Hamilton ræðir við Jackie Stewart, þrefaldan meistara í Formúlu 1. Hamilton vill þrjá titla svo hann vinni sér inn McLaren sportbíl. Mynd: Getty Images

Lewis Hamilton segist ekki stefna sérstaklega á að slá met Michael Schumacher hvað flesta titla í Formúlu 1 varðar. Schumacher vann sjö titla á ferlinum, en Hamilton vill þó vinna þrjá til að fá draumabílinn upp í hendurnar.

"Ég er ekki að keppa til að slá met Michael Schumacher. Það heillar mig ekkert sem markmið. Ég nýt þess að keppa og vinna og það er stórmál að vinna tiitilinn. Ef ég vinn fleiri titla, þá er það bara gott mál", sagði Lewis Hamilton um fyrsta titilinn.

Hann ætlar þó að vinna þrjá titla með McLaren því það þýðir að hann getur eignast McLaren F1 sportbíl, sem Ron Dennis er búinn að lofa honum ef hann nær þrjá tittla. Hamilton hefur langað þann fágæta bíl frá unglingsárunum.

"Margir segja að annað árið í Formúlu 1 sé erfiðara en það fyrsta, en ég er ekki sammála því. Ég held maður læri bara ár frá ári og þroskist sem ökumaður og persóna. Ég hlakka til að keyra með tölustafinn 1 á bílnum mínum á næsta ári og hlakka líka til að komast í frí með fjölskyldu minni eftir annasamt ár", sagði Hamilton.

Sjá ítarlegt viðtal við Hamilton












Fleiri fréttir

Sjá meira


×