Fótbolti

Ze Roberto ætlar að læra til prests

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Ze Roberto hjá Bayern Munchen hefur mikinn áhuga á að fara í prestnám eftir að hann leggur skóna á hilluna.

"Ég get vel hugsað mér að gerast prestur þegar ég hætti að spila," sagði miðjumaðurinn í samtali við Bild í Þýskalandi.

"Ég hef kynnt mér málið og maður er aðeins fjögur ár að afla sér réttinda. Það yrði mjög gefandi. Trúarbrögð eru mér mjög mikilvæg," sagði Ze Roberto.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×