Golf

Ballesteros fer í þriðju aðgerðina í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Seve Ballesteros með Nick Faldo.
Seve Ballesteros með Nick Faldo. Nordic Photos / Getty Images

Seve Ballesteros mun í dag gangast undir þriðju aðgerðina á skömmum tíma eftir að heilaæxli var uppgötvað fyrr í mánuðinum.

Búist er við því að aðgerðin muni standa yfir stærstan hluta dagsins en reynt verður að klára að fjarlægja æxlið.

Hann fór í fyrstu aðgerðina í síðustu viku en þurfti að fara aftur í aðgerð þar sem að læknar þurftu að minnka þrýsting á heilann.

Ástand Ballesteros er sagt vera stöðugt en afar alvarlegt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×