Formúla 1

Hamilton sigraði á heimavelli

NordcPhotos/GettyImages

Breski ökuþórinn Lewis Hamilton vann í dag sinn fyrsta sigur á ferlinum á Silverstone brautinni á Englandi við erfiðar aðstæður. Þjóðverjinn Nick Heidfeld á BMW náði öðru sætinu og gamla kempan Rubens Barrichello á Honda varð þriðji.

Rigning setti svip sinn á keppnina í dag eins og reiknað var með en keppnisáætlun McLaren gekk upp við þessar erfiðu aðstæður.

Sigur Hamilton þýðir að hann er nú kominn upp að hlið Ferrari ökumannanna Felipe Massa og Kimi Raikkönen á toppnum í keppni ökumanna, en þeir Massa og Raikkönen náðu 13. og 4. sætinu í dag.

Hamilton ók einhverja bestu keppni sína á ferlinum í dag og var til að mynda aðeins fjórði á ráslínu þegar kappaksturinn hófst í dag. Hann fékk tækifæri til að sýna hvað í honum bjó í rigningunni í dag og greip tækifærið og skilaði sigri í hús fyrir McLaren með frábærum akstri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×