Fótbolti

Þýskaland: Hoffenheim enn efst

Leikmenn Hoffenheim fagna öruggum sigri í gær
Leikmenn Hoffenheim fagna öruggum sigri í gær NordicPhotos/GettyImages

Nýliðar Hoffenheim eru enn í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar. Liðið vann 4-1 sigur á Karlsruhe í gær og hefur 25 stig, einu meira en Leverkusen sem lagði Wolfsburg 2-0 í gær.

Bayern Munchen er í þriðja sæti með 21 stig eftir 3-1 sigur á Bielefeld í gær. Dortmund varð af mikilvægum stigum í baráttunni um Evrópusæti þegar það gerði 1-1 jafntefli við granna sína í Bochum í dag. Dortmund er í sjötta sæti en Bochum í því fimmtánda.

Þá vann Frankfurt 2-1 sigur á Gladbach í dag. Gladbach er á fallsvæðinu með aðeins sjö stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×