Fótbolti

Hannes óskaði eftir því að verða seldur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hannes í leik með íslenska landsliðinu.
Hannes í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Anton

Hannes Þ. Sigurðsson sagði í samtali við Vísi að hann hefði sjálfur óskað eftir því að verða seldur frá norska úrvalsdeildarliðinu Viking.

Félagaskiptaglugginn er lokaður víðast hvar í Evrópu en hann er opinn í Noregi, Svíþjóð og Rússlandi til næstu mánaðamóta.

„Það er annað hvort Svíþjóð eða Síbería," sagði hann í léttum dúr en hann sagðist helst ekki vilja spila með öðru félagi í Noregi. „Maður á aldrei að segja aldrei en ég vildi helst komast til Svíþjóðar."

Æskufélagi Hannesar og liðsfélagi úr FH, Sverrir Garðarsson, samdi nýverið við sænska úrvalsdeildarliðið Sundsvall sem hefur sýnt Hannesi áhuga.

„Ég hefði ekkert á móti því að hitta hann aftur, af því að ég kannast nú aðeins við hann."

Fram kom hér á Vísi að það hefði verið fjárfestingarfélag sem fjármagnaði kaupin á Sverri og því aldrei að vita nema að félagið fari sömu leið við kaupin á Hannesi. Hann segir að Viking sé ekki að setja of háan verðmiða á sig.

„Nei, ég held ekki. Ég held að þeir séu að fara fram á mjög sanngjarnt verð. Þeir skilja mína afstöðu mjög vel enda finnst engum gaman að sitja á bekknum."

Þetta er í annað skiptið á ferlinum sem hann leikur með Viking en það gerði hann einnig á árunum 2002 til 2005. Þá fór hann til Stoke þar sem hann var í tvö tímabil, svo til Bröndby og að lokum til Viking.

„Mér líður mjög vel í Stafangri og ber miklar taugar til félagsins. Ég kom við sögu í næstflestum leikjum allra leikmanna hér þó svo að ég hafi ekki alltaf verið í byrjunarliðinu. En ég vil koma til félags þar sem ég fæ að spila reglulega."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×