Viðskipti innlent

Krónan fellur um 2,4 prósent

Gengi krónunnar féll um 2,4 prósent í kringum hádegisbil í dag. Það hefur ekki verið lægra í fimm ár.

Gengi hávaxtamynta hefur lækkað töluvert sömuleiðis.

Gengisvísitalan stendur í rúmum 162,3 stigum.

Einn bandaríkjadalur kostar nú 81,5 krónu, evra 126,3 krónur, breskt pund 159,3 krónur. Þá kostaði ein dönsk króna rétt tæpar 17 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×