Íslenski boltinn

Ásgeir Sigurvinsson

MYND/MYNDASAFN KSÍ
Varð á sínum tíma yngsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi er hann lék með landsliðinu árið 1972, sautján ára gamall. Lék í átta ár með Standard Liege í Belgíu, fór til Bayern München árið 1981 og ári síðar til Stuttgart þar sem hann lék þar til hann hætti árið 1990. Varð þýskur meistari árið 1984, kjörinn besti leikmaður deildarinnar það árið og varð í 13. sæti í kjöri World Soccer um besta knattspyrnumann heimsins það árið. Átti glæstan landsliðsferil og er enn í dag minnst sem einn besta leikmanns Stuttgart frá upphafi.

Landsleikir: 45/5



Fleiri fréttir

Sjá meira


×