Viðskipti innlent

Fyrstu viðskipti með Straumsbréf felld niður

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands.

Kauphöllin felldi í morgun niður viðskipti með hlutabréf í Straumi. Tilboð í bréfin hljóðuðu upp á 11,36 til 11,6 krónur á hlut. Þetta voru fyrstu viðskiptin með bréf félagsins í morgun og keyrði það upp um rúm sex prósent.

Eftir niðurfellinguna lækkaði gengi bréfa Straums um 0,94 prósent. Það stendur nú í 10,58 krónum á hlut.

Niðurfellingin er í samræmi við kauphallarreglur, samkvæmt tilkynningu frá Kauphöllinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×