Enski boltinn

Liverpool semur við ungan Brassa

Rafa Benitez sankar að sér ungum Brasilíumönnum
Rafa Benitez sankar að sér ungum Brasilíumönnum NordicPhotos/GettyImages

Liverpool hefur gengið frá samningi við framherjann Vitor Flora sem er 18 ára gamall og kemur frá Brasilíu. Hann var með lausa samninga hjá liði Botafogo en er með ítalskt vegabréf og þarf því ekki að verða sér út um atvinnuleyfi.

Hann á þó enn eftir að verða sér út um alþjóðlega leikheimild til að verða löglegur með Liverpool. Flora hittir fyrir landa sína Lucas Leiva og Fabio Aurelio á Anfield og svo gæti farið að hann spilaði með varaliði Liverpool annað kvöld.

Flora þessi ku vera með eitraðan vinstrifót og öskufljótur. Hann er sjötti leikmaðurinn sem Rafa Benitez fær til liðs við sig í sumar, en vonir standa til um að Liverpool nái að landa vængmanninum Albert Riera frá Espanyol fyrir lokun félagaskiptagluggans í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×