Héraðsdómur snýr úrskurði Jónínu við 26. september 2008 15:26 Jónína Bjartmarz, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, var umhverfisráðherra 2006 til 2007.
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag úr gildi úrskurð Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, þar sem fallist var á lagningu vegar í gegnum Teigsskóg á Vestfjörðum. Í júlí 2003 lagði Vegagerðin fram drög að tillögu að matsáætlun á umhverfisáhrifum Vestfjarðavegar við Þórisstaði-Eyrará í Reykhólahreppi. Greint var frá sex mismunandi framkvæmdarkostum. Ein tillagan varðaði veglagningu um Teigsskóg en hana útilokaði Skipulagsstofnun í febrúar 2006 meðal annars vegna umhverfisspjalla. Jónína kvað upp úrskurð 5. janúar 2007 þar sem hún féllst á leiðina með tilteknum skilyrðum þvert gegn fyrri niðurstöðu Skipulagsstofnunar. Náttúveruverndarsamtök Íslands, Fuglavernd og landeigendur stefndu Jónínu í kjölfarið og kröfðust þess að úrskurður hennar yrði felldur út gildi og úrskurðaði Héraðsdómur á þá vegu í dag. „Við fögnum sigri og erum ákaflega glöð með þessa niðurstöðu og teljum hann umhverfinu og náttúruvernd í hag," sagði Katrín Theódórsdóttir lögfræðingur kæranda og bætti við að dómurinn væri umhverfisvernd til framdráttar.
Teigsskógur Mest lesið Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Innlent Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Innlent Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Innlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Innlent Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Innlent Fleiri fréttir „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Opna Grindavík á ný Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykjanesi Sjúkratryggingar auglýsa eftir rekstraraðilum hjúkrunarheimila Góður árangur af hraunkælingu við varnargarðana Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Vara við gosmengun á nærliggjandi svæðum í dag Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili „Árleg æfing í vonbrigðum“ Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Sjá meira