Tæplega 14.000 uppsagnir í danska byggingargeiranum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 29. desember 2008 07:57 Byggingarvinnusvæði.
Þeir eru 13.600, starfsmenn danskra byggingarverktaka sem fengið hafa í hendur uppsagnarbréf síðastliðna sex mánuði. Ef miðað er við hefðbundinn þriggja mánaða uppsagnarfrest er ljóst að stór hópur er þegar orðinn atvinnulaus en margir vinna enn uppsagnarfresti sína. Dönsku byggingarverktakasamtökin segja yfir 8.000 þeirra sem sagt hefur verið upp faglærða iðnaðarmenn og að þrír af hverjum 10 byggingarverktökum í landinu berjist nú í bökkum vegna stöðu efnahagsmála eða sjái fram á að vera komnir í þá stöðu innan árs. Andreas Fernstrøm hjá byggingarverktakasamtökunum segir ástandið eins konar dómínó-áhrif. Þegar einn verktaki komist í þrot og geti ekki borgað komi það niður á þeim næsta og svo koll af kolli. Hann segir nýlega könnun enn fremur hafa leitt það í ljós að helmingur danskra byggingarverktaka finni nú fyrir því að erfiðara sé að nálgast lánsfé í bönkum en áður.
Mest lesið Staðreyndum snúið á hvolf til að eigna ríkisstjórninni verðbólguna Viðskipti innlent Seðlabankinn hafi ekki önnur úrræði en að lækka vexti Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Tónleikastöðum fækkar: „Þetta er bara sorgleg þróun“ Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Spá áframhaldandi óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Samstarf „Allt að því galið“ að taka ekki þátt í séreignarsparnaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira