Golf

Greg Norman var maður dagsins

NordcPhotos/GettyImages

Hinn 53 ára gamli Greg Norman var maður dagsins á opna breska meistaramótinu í golfi í gær þegar hann lék fyrsta hringinn á pari við erfiðar aðstæður. Norman er aðeins höggi á eftir þremur efstu kylfingunum á mótinu.

Þeir Graeme McDowell, Stuart Allenby og Rocco Mediate hafa forystu á mótinu og léku allir á 69 höggum, eða höggi undir pari.

Ástralíumaðurinn Greg Norman, eða Hvíti Hákarlinn eins og hann er kallaður, er næstelsti keppandi mótsins og hefur tvívegis unnið það - síðast fyrir einum og hálfum áratug. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×