Viðskipti innlent

Milljarðatilboð í Landsbankabréf felld niður

Landsbanki Íslands.
Landsbanki Íslands.

Tvenn utanþingsviðskipti með bréf í Landsbankanum upp á samtals 8,9 milljarða króna var skráð í Kauphöll Íslands í morgun og hífði það meðalveltuna verulega upp á milli daga.

Viðskiptin voru felld niður um hádegisbil.

Ekki var um raunveruleg viðskipti að ræða líkt og reglur kveða á um, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Eins og gefur að skilja lækkaði heildarveltan á hlutabréfamarkaði verulega við þetta en hún nam tæpum 680 milljónum króna í heildina um klukkan hálf tvö.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×