Fótbolti

Hannes varð fyrir líkamsárás og er frá í mánuð

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hannes Þ. Sigurðsson í landsleik.
Hannes Þ. Sigurðsson í landsleik.

Íslenski landsliðsmaðurinn Hannes Þ. Sigurðsson verður frá fótboltaiðkun í mánuð eftir að hafa orðið fyrir barsmíðum í miðbæ Reykjavíkur um hátíðarnar. Þetta kemur fram í norskum fjölmiðlum en Hannes leikur með Viking í Stafangri.

Hannes brotnaði á þremur stöðum í andlitinu og hefur kært atvikið. Hinsvegar vill hann ekkert tjá sig um málið og það sama á við um Viking.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×