Viðskipti innlent

Exista hækkaði um 17,3%

Forstjórar og stjórnarformaður Existu.
Forstjórar og stjórnarformaður Existu. Mynd/GVA
Exista toppaði mikla hækkanahrinu í Kauphöllinni í dag með hækkun upp á 17,3 prósent. Gengi bréfa í Spron hækkaði um 10 prósent, Færeyjabanka um 8,8 prósent en í Atlantic Petroleum og Atorku um sex prósent. Þá hækkaði gengi bréfa í Glitni um 5,44 prósent og í Bakkavör um 5,33 prósent. Bréf Kaupþings, Landsbankans og Straums hækkað um rúm fjögur prósent. Eina félagið sem lækkaði í dag var Century Aluminum, en það féll um 2,56 prósent. Úrvalsvísitalan hækkaði um heil 5,25 prósent og stendur vísitalan í 4.057 stigum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×