Lífið

Búið að velja pörin sem taka þátt í Hæðinni

Búið er að velja pörin þrjú sem taka þátt í hönnunar- og raunveruleikaþættinum Hæðinni á Stöð 2. Áhugi á þættinum fór fram úr björtustu vonum aðstandenda, en alls sóttu 509 pör um að taka þátt. Það var því ekki hlaupið að því að velja úr hópnum.

„Þetta var lúxusvandamál" segir þáttastjórnandinn, Gulli Helga, en alls tóku hann og aðrir aðstandendur viðtöl við 65 paranna. Eftir miklar vangaveltur voru þrjú valin. Þau eru Brynjar Ingólfsson 25 ára fasteignasali og Steinunn Garðarsdóttir 28 ára framkvæmdastjóri heildverslunarinnar Kátínu, Inácio Pacas da Silva Filho 48 ára matreiðslu- og listamaður og Guðbergur Garðarsson 46 ára matreiðslumaður og Elísabet S. Ólafsdóttir 52ja ára skrifstofustjóri ríkissáttasemjara og Hreiðar Örn Gestsson 44 ára húsasmíðameistari.
Pörin flytja í lok febrúar inn í hver sitt 250 fermetra raðhúsið við Árakur á Arnarneshæð. Húsið verður tilbúið til innréttinga, og parið þarf svo að hanna það frá frá a-ö, velja gólfefni, innréttingar og lýsingu. Þau dvelja í húsinu í tvo mánuði á meðan á tökum stendur, og taka ekkert með sér annað en fötin og tannburstann. „Það er bara dýnan og grjótið", segir Gulli hlæjandi. „Maður þarf bara að vona að svefnherbergið verði tekið snemma."

Húsið er gert upp í áföngum, og fær parið ákveðið fjármagn fyrir hvern hluta. Eftir hvern áfanga gefur dómnefnd einkunn, en að lokum eru það áhorfendur Stöðvar 2 sem velja sigurvegara þáttanna. Það par hlýtur tvær milljónir í verðlaun.

Gulli segir að pörin eigi skemmtilega vinnu fyrir höndum, en þáttakan verði þó ekki bara dans á rósum. „Myndavélin verður ofan í hálsmálinu á keppendum öll kvöld og helgar", segir Gulli. Aðspurður hvort þeir muni sýna pirringinn og þrasið sem getur fylgt svona framkvæmdum segir hann svo vera, en hefur þó ekki áhyggjur að það verði mikið af því, „Þetta eru svo glaðlynd pör", segir Gulli að lokum.

Nánar verður fjallað um þáttinn í Íslandi í dag í kvöld.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.